Rúnar Páll Sigmundsson og Ólafur Jóhannesson eru tveir aðalþjálfarar hjá Stjörnunni. Rúnar Páll er sá þjálfari sem hefur verið lengst í starfi í efstu deild karla.
Ólafur hafði verið þjálfari Vals fimm árin á undan en hans krafta var ekki óskað áfram á Hlíðarenda eftir síðasta tímabil.
Ólafur hafði verið þjálfari Vals fimm árin á undan en hans krafta var ekki óskað áfram á Hlíðarenda eftir síðasta tímabil.
Rúnar Páll sannfærði Ólaf um að koma í Stjörnuna og vinna þeir þa rsaman, fáheyrt að tveir jafn reyndir þjálfarar og þeir tveir eru vinni saman. Um þetta var rætt í Sportið í kvöld sem var sýnt á Stöð 2 Sport í kvöld.
Guðmundur Benediktsson var þáttarstjórnandi og Freyr Alexandersson ásamt Hjörvari Hafliðasyni voru gestir þáttarins.
Þar segir Hjörvar Hafliðason að Heimir Guðjónsson hafi fengið að vita það 6. október 2017 að hann fengi ekki að vera áfram hjá FH. Ekkert starf var laust í efstu deild, búið var að ráða í laus störf fyrir þann tíma.
„Ég held að Freysi sé einn af þeim fáum sem hafi verið í svona teymi (tveggja þjálfara) í efstu deild á Íslandi," sagði Hjörvar þegar hann ræddi um Stjörnuna. Hjörvar var þarna að ræða um 'aðstoðar'þjálfara ráðningu Rúnars Páls. Hjörvar er spenntur fyrir þessu verkefni í Garðabænum.
„Ég ætla þá að segja þér eitt núna. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Rúnar reynir þetta, því þú nefndir Heimi Guðjónsson áðan," svaraði Gummi.
„Þegar allar dyr virtust lokaðar (eftir tímabilið 2017) þá veit ég það fyrir víst að Rúnar Páll hafði samband við Heimi Guðjóns og ætlaði að fá hann með sér."
„Já þeir funduðu og það var komið ansi langt áður en Færeyja'giggið' kom," bætti Freysi við.
Athugasemdir