48 þjóðir taka þátt á HM í sumar og vekur það athygli að aðeins ein af hverjum þremur hlutfallslega eru með heimamann í þjálfarastólnum.
31 þjálfarar af 48 eru ekki heimamenn og af þeim eru Argentínumenn með flesta fulltrúa, eða sex talsins.
Lionel Scaloni stýrir sinni eigin þjóð en svo eru Mauricio Pochettino, Marcelo Bielsa, Gustavo Alfaro, Sebastián Beccacece og Néstor Lorenzo einnig við stjórnvölinn hjá öðrum þjóðum. Pochettino stýrir heimamönnum í bandaríska landsliðinu á meðan hinir eru með þjóðir frá Suður-Ameríku, Paragvæ, Ekvador, Kólumbíu og Úrúgvæ.
Frakkar eiga fimm þjálfara. Didier Deschamps stýrir franska landsliðinu en svo eru Rudi Garcia, Sabri Lamouchi, Sébastien Desabre og Sébastien Migné einnig með þjóðir á mótinu. Belgía, Túnis, Kongó og Haítí eru með franska þjálfara enda allar þjóðirnar með sterkar tengingar við Frakkland.
Spánverjar eiga fjóra þjálfara þar sem Luis de la Fuente stýrir Spáni á meðan Julen Lopetegui, Roberto Martínez og Thomas Christiansen eru einnig á mótinu. Christiansen er hálfur Dani og hálfur Spánverji.
Að lokum eiga Ítalir og Þjóðverjar þrjá þjálfara hvort á HM og eru tíu aðrir erlendir þjálfarar við stjórnvölinn.
02.06.2026 17:20
Samantekt: Öll liðin á HM hafa opinberað leikmannahópa sína
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




