Það virðist svo gott sem staðfest að Andoni Iraola verður næsti þjálfari Liverpool eftir að Arne Slot var rekinn á dögunum.
Það hefur mikið verið rætt og ritað um Iraola síðustu misseri eftir magnaðan árangur með Bournemouth og nú hefur Fabrizio Romano skellt „here we go!" stimplinum sínum fræga á félagaskiptin.
Iraola er frjáls ferða sinna eftir þrjú ár í Bournemouth og hefur verið orðaður við ýmis félög víða um Evrópu.
Liverpool verður fyrsta stórveldið sem Iraola tekur við og eru margir sem hafa sett spurningarmerki við hvort hann sé tilbúinn fyrir pressuna sem fylgir svo stóru starfi.
02.06.2026 16:21
Carragher með efasemdir um Iraola





