Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   þri 02. júní 2026 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd náði samkomulagi við Atalanta
Mynd: EPA
David Ornstein hjá The Athletic greinir frá því að Manchester United sé loksins búið að ná samkomulagi um kaupverð fyrir brasilíska miðjumanninn Éderson.

Éderson er eftirsóttur af ýmsum félagsliðum og greinir Ornstein frá því að Rauðu djöflarnir borga í heildina um 45 milljónir evra til að ganga frá kaupunum. Þar af eru 4,5 milljónir í árangurstengdar aukagreiðslur.

Éderson, sem er 26 ára gamall, er búinn að gefa samþykki fyrir fjögurra ára samningi með möguleika á auka ári.

Hann á eftir að gangast undir læknisskoðun og má búast við að félagaskiptin verði ekki tilkynnt fyrr en í byrjun júlí.

   27.05.2026 18:01
Man Utd að landa Ederson

Slapp