Það fóru nokkrir vináttulandsleikir fram í dag í undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið og var stórleikur á dagskrá í Króatíu.
Þar tóku heimamenn á móti Belgum sem voru sterkari aðilinn. Youri Tielemans skoraði í fyrri hálfleik og innsiglaði Romelu Lukaku sigurinn seint í uppbótartíma.
Luka Modric og Mateo Kovacic byrjuðu saman á miðjunni hjá Króatíu ásamt Petar Sucic leikmanni Inter og var Martin Baturina, mikilvægur hlekkur í sterku liði Como, einnig í byrjunarliðinu.
Ivan Perisic, Josip Stanisic, Josko Gvardiol og Luka Vuskovic voru einnig meðal byrjunarliðsmanna í sterku liði Króatíu, en Vuskovic þykir einn af efnilegustu miðvörðum heims.
Jérémy Doku, Kevin De Bruyne, Charles De Ketelaere og André Onana voru meðal byrjunarliðsmanna í sterku liði Belga, með Thibaut Courtois á milli stanganna.
Wales gerði þá jafntefli við Gana þar sem Lewis Koumas, leikmaður Hull City, bjargaði jafntefli í uppbótartíma. Lokatölur urðu 1-1 eftir jafnan slag. Thomas Partey var í byrjunarliði Gana og mátti finna ýmsa úrvalsdeildarleikmenn í byrjunarliði heimamanna.
Ismael Saibari lék fyrri hálfleikinn og skoraði tvennu í þægilegum sigri Marokkó gegn Madagaskar og þá unnu heimamenn í Kanada gegn Úsbekístan.
Khvicha Kvaratskhelia sat á bekknum allan tímann í jafntefli hjá Georgíu gegn Rúmeníu enda mikilvægt að hvíla hann eftir að hafa spilað úrslitaleik Meistaradeildarinnar um helgina.
Króatía 0 - 2 Belgía
0-1 Youri Tielemans ('38 )
0-2 Romelu Lukaku ('96 )
Georgía 1 - 1 Rúmenía
1-0 Giorgi Kvilitaia ('46 )
1-1 Louis Munteanu ('55 )
Marokkó 4 - 0 Madagaskar
1-0 Ismael Saibari ('4 )
2-0 Ismael Saibari ('25 )
3-0 Soufiane Rahimi ('78 , víti)
4-0 Ayoub El Kaabi ('87 )
Rautt spjald: El Hadary Ylan, Madagascar ('79)
Wales 1 - 1 Gana
0-1 Caleb Yirenkyi ('66 )
1-1 Lewis Koumas ('93)
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


