Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 02. september 2022 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alonso mættur til Barcelona - Fetar í fótspor föður síns
Mynd: EPA

Marcos Alonso yfirgaf Chelsea á dögunum en hann hefur verið orðaður við Barcelona undanfarið.


Hann hefur nú skrifað undir samning við félagið en Barcelona birti myndir af honum ásamt Hector Bellerin á æfingasvæi félagsins en Bellerin gekk til liðsins frá Arsenal í gær.

Alonso er mjög spenntur að spila með Barcelona og þá sérstaklega að feta í fótspor föður síns sem lék með liðinu á sínum tíma.

Marcos Alonso eldri lék með Barcelona á árunum 1982–1987 en þeir feðgar eru báðir aldir upp hjá Real Madrid.


Athugasemdir
banner
banner