Fotbolti.net
03.05.21 - 20:22
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Pau Lopez ekki meira með Roma á tímabilinu

Pau Lopez meiddist gegn Man Utd

Pau Lopez meiddist gegn Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Spænski markvörðurinn Pau Lopez verður ekki meira með Roma á þessu tímabili eftir að hann meiddist í 6-2 tapi liðsins gegn Manchester United í undanúrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudag.
Lopez var í rammanum gegn Man Utd en þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik eftir að hann meiddist á öxl.

Hann fór til Sviss í skoðun og er nú ljóst að hann þarf að fara í aðgerð og því ekki meira með á þessu tímabili.

Lopez verður því ekki meira með Roma á þessari leiktíð en Antonio Mirante mun taka við keflinu af honum og standa vaktina í markinu út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.