Fotbolti.net
03.06.18 - 22:42
Egill Sigfússon

Rúnar Páll: Haraldur sá til þess að við unnum þennan leik

Auglýsing
3 stig heim til Rúnars í kvöld

3 stig heim til Rúnars í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Stjarnan vann gríðarlega mikilvægan sigur á toppliði Breiðabliks á Kópavogsvelli í kvöld og kom sér inn í toppbaráttu deildarinnar. Rúnar sagði að þessi sigur var virkilega þýðingamikill.

„Frábær frammistaða í kvöld eins og í síðustu leikjum, mjög sætt að fá 3 stig. Við gerðum allt vel, við vorum hrikalega baráttuglaðir og vinnusamir og vorum mjög fókuseraðir á verkefnið eins og í síðustu leikjum.\"

Stjarnan var að vinna sinn annan leik í sumar en eru samt sem áður komnir í toppbaráttuna, Rúnar er virkilega ánægður með hvernig deildin hefur farið af stað.

Deildin er mjög öflug, öflug lið og skemmtilegur fótbolti, bæði vel spilandi og aggressívur fótbolti og það er bara skemmtilegt að fylgjast með þessu.\"
Stjörnumenn hleyptu inn mikið af mörkum í byrjun móts en liðið er allt annað að sjá núna varnarlega og Halli Björns bjargaði þeim vel í lokin.

„Það er hrikalega mikilvægt að fá alla leikmenn upp á tærnar og gera sitt besta og Haraldur sá til þess að við unnum þennan leik með frábærri markvörslu.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.