Ruben Loftus-Cheek er viss um að þetta verði hans tímabil með Chelsea en nú styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað á ný.
Loftus-Cheek var lánaður til Fulham á síðustu leiktíð og var í erfiðleikum þar í byrjun í liði sem féll úr efstu deild.
Óvíst er hvaða hlutverk Loftus-Cheek mun spila hjá Chelsea í vetur en hann mun væntanlega ekki verða númer eitt hjá Thomas Tuchel.
Miðjumaðurinn er enn aðeins 25 ára gamall og ætlar að sýna sig og sanna í vetur fyrir Evrópumeistarana.
„Ég byrjaði síðasta tímabil erfiðlega andlega og þurfti að einbeita mér að því að taka áhættur á æfingum og fá tilfinninguna til baka. Hún kom til baka að lokum og ég gerði vel í leikjum," sagði Loftus-Cheek.
„Ég hef glímt við mín meiðsli og hef nú fengið tíma til að komast í stand og fá sjálfstraust og þetta er tímabilið þar sem ég kemst af stað."
Athugasemdir