Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. október 2020 09:00
Victor Pálsson
Saliba líklega lánaður frá Arsenal
Mynd: Getty Images
William Saliba, leikmaður Arsenal, verður að öllum líkindum lánaður frá félaginu áður en glugginn lokar á mánudag.

Nokkrir erlendir miðlar greina frá þessu en Saliba er 19 ára gamall hafsent og kom til Arsenal frá Saint-Etienne árið 2019.

Hann var hins vegar lánaður til Frakklands aftur og hefur ekki fengið tækifæri með enska félaginu í keppnisleik.

Arsenal borgaði 27 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er nú mögulega á leið aftur til Frakklands.

Rennes ku vera í bílstjórasætinu þessa stundina en liðið er á toppnum í Frakklandi eftir fimm umferðir.

Athugasemdir
banner
banner
banner