Það er nóg af leikjum á dagskrá í enska bikarnum í dag og munu þeir allir hefjast einni mínútu á eftir áætlun til að vekja athygli á andlegri heilsu stuðningsmanna.
Skilaboðin eru þau að fólk verði að taka sér tíma til að tala um eigin heilsu, þó það taki ekki nema mínútu.
Andleg heilsa spilar stórt hlutverk í fótbolta og hafa margir knattspyrnumenn fallið í þunglyndi eftir að ferlinum lauk og jafnvel á meðan á honum stóð.
Hér fyrir neðan má sjá myndband þar sem atvinnumenn á borð við Frank Lampard, Harry Maguire og Son Heung-min tjá sig um andlega heilsu.
Skilaboðin fjalla um mikilvægi þess að tala um andlega heilsu og geðræna kvilla tímanlega.
'We can get a strong message out – it's not talked about enough'
— England (@England) January 3, 2020
Hear from Frank Lampard, @HarryMaguire93, @MelissaLawley_ and more:pic.twitter.com/FFBO3os2Xm
Athugasemdir