Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 04. janúar 2022 18:00
Victor Pálsson
Dómarinn áttaði sig á eigin mistökum - Vonaði að Ronaldo myndi klúðra
Mynd: Getty Images
Howard Webb, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, hefur tjáð sig um atvik sem gerðist í leik Tottenham og Manchester United árið 2009 er þessi lið áttust við á Old Trafford.

Tottenham komst í stöðuna 2-0 í þessum leik áður en Webb ákvað að dæma vítaspyrnu á Heurelho Gomes, markvörð Tottenham, fyrir brot á Michael Carrick.

Webb ræddi þetta augnablik í samtali við Athletic en hann áttaði sig um leið að mistök hefðu verið gerð og að vítaspyrnudómurinn væri rangur.

Á þessum tíma gátu dómarar hins vegar ekki notast við VAR og steig Cristiano Ronaldo á punktinn og skoraði. Man Utd vann leikinn að lokum 5-2.

Webb viðurkennir að hann hafi vonast eftir því að Ronaldo myndi klúðra spyrnunni svo vítaspyrnan myndi ekki hafa áhrif á gang mála.

„Það sem ég hugsa fyrst um er í leik þar sem ég vissi að ég hefði gert mistök. Þetta var leikur Totttenham og Manchester United á Old Trafford 2009," sagði Webb.

„Ég sá Michael Carrick ná fyrst til boltans og svo kom markmaðurinn inn í hann. Þetta virkaði auðvelt víti að dæma. Ég bjóst við þessum venjulegu kvörtunum en ekki þessari undrun sem fylgdi."

„Það var augljóst um leið að ég hefði gert mistök. Það var eitthvað meira þarna. Ég þurfti að standa með ákvörðuninni og minni tilfinningu. Ég vonaðist bara eftir að Ronaldo myndi klúðra vítinu en hann gerði það ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner