Fotbolti.net
04.04.21 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalski boltinn

Juventus í viðræðum um kaup á Locatelli

Manuel Locatelli.

Manuel Locatelli.

Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur hafið viðræður við Sassuolo um kaup á miðjumanninum Manuel Locatelli.

<a href="https://www.goal.com/en/news/juventus-in-talks-to-sign-40m-italy-star-locatelli/18hf3o88gl5681bz4iyxxkxif8" target="_blank">Goal á Ítalíu</a> staðfestir þetta.
Fabio Paratici, yfirmaður knattspyrnumála hjá Juventus, hefur verið aðdáandi leikmannsins frá því hann skaust fram á sjónarsviðið hjá AC Milan fyrir fimm árum síðan.

Áhuginn Juventus á hinum 23 ára gamla Locatelli hefur aukist síðustu mánuði eftir góða frammistöðu hans með Sassuolo og ítalska landsliðinu.

Talið er að Sassuolo muni biðja um 40 milljónir evra fyrir hann en Juventus ætlar sér að reyna að ganga frá kaupunum hratt og örugglega til að forðast það að önnur félög blandi sér í kapphlaupið um miðjumanninn öfluga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.