Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. október 2020 17:32
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Aston Villa og Liverpool: Barkley og Jota byrja
Mynd: Getty Images
Aston Villa tekur á móti Englandsmeisturum Liverpool í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Ross Barkley kemur inn í byrjunarlið heimamanna en hann er nýkominn til liðsins að láni frá Chelsea.

Liverpool er án lykilmanna þar sem Alisson er meiddur og Sadio Mane með kórónuveiruna, rétt eins og Thiago Alcantara.

Diogo Jota byrjar í stað Mane í sóknarlínunni og er Naby Keita á miðjunni ásamt Georginio Wijnaldum og Fabinho.

Liverpool er með fullt hús stiga og getur jafnað Everton á toppi deildarinnar með sigri í Birmingham.

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Mings, Targett, Luiz, McGinn, Barkley, Grealish, Trezeguet, Watkins
Varamenn: Steer, Hourihane, Traore, Nakamba, El Ghazi, Elmohamady, Davis

Liverpool: Adrian, Alexander-Arnold, Gomez, Van Dijk, Robertson, Fabinho, Wijnaldum, Keita, Salah, Firmino, Jota
Varamenn: Kelleher, Milner, Henderson, Jones, Minamino, Origi, Williams
Athugasemdir
banner
banner
banner