Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. desember 2012 15:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Liverpool 
Jonjo Shelvey segist tilbúinn að fylla skarð Suarez
Mynd: Getty Images
Jonjo Shelvey segist vera tilbúinn að spila í fremstu víglínu Liverpool gegn West Ham um næstu helgi þegar aðalframherji liðsins Luis Suarez tekur út leikbann.

Shelvey hefur prófað að spila frammi á þessu tímabili en hann hefur þó aðallega leikið á miðjunni og köntunum.

Liverpool er ekki með mikla breidd í fremstu víglínu og Shelvey segist vera tilbúinn að fylla skarð Suarez á sunnudag.

,,Hvort sem ég spila vinstri bakvörð, hægri bakvörð eða jafnvel í markinu þá er ég ánægður því að ég er hjá Liverpool. Ég myndi spila hvar sem er fyrir þetta félag," sagði Shelvey.

,,Ég hef alltaf getað komið með hlaup inn í vítateiginn og ég ætti að vera búinn að skora aðeins fleiri mörk undanfarnar vikur. Ég hef komist í góðar stöður en ekki náð að setja boltann í netið. Ég held samt að mörkin muni koma."
Athugasemdir
banner
banner