Skráning er í gangi í Boladeildina, sjö manna utandeildina sem fram fer á gervigrasvelli Leiknis í Breiðholti.
Keppnisgjald er 90 þúsund krónur á lið en ósk um þátttöku skal senda á [email protected].
Sumardeildin verður með saman sniði og undanfarin ár. Leikið er 2x25 mínútur á gervigrasvelli Leiknis. Mótið hefst í byrjun maí og fær hvert lið að meðtaltali 12 leiki.
Leikir í deildarkeppni fara fram í miðri viku en bikarkeppnin er leikin á sunnudögum
Greiða þarf staðfestingargjald 35.000 kr. fyrir 6. mars og fullnaðargreiðsla þarf að berast fyrir 10. apríl.
Athugasemdir