Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 05. apríl 2021 20:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Belgía: Lommel missti af dýrmætum stigum - Kolbeinn í sóttkví
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Deinze 2 - 1 Lommel
0-1 K. J. Attah
1-1 M. Tarfi
2-1 L. Mertens

Lommel tapaði 2-1 á útivelli gegn Deinze í belgísku B-deildinni í kvöld. Lommel er í harðri baráttu um 2. sæti deildarinnar. 2. sætið veitir sæti í efstu deild á næsta tímabili.

Lommel hefði getað minnkað muninn í Seraing niður í tvö stig með sigri. Á móti minnkaði Deinze muninn í Lommel niður í tvö stig. Deinze er í 4. sæti deildarinnar.

Lommel komst yfir í leiknum og leiddi í hléi. Í seinni hálfleik sneru heimamenn taflinu sér í vil og lönduðu sigrinum.

Kolbeinn Þórðarson er leikmaður Lommel en lék ekki með liðinu í dag. Kolbeini var skipaðí sóttkví eftir að hafa komið til Belgíu frá Ungverjalandi á fimmtudag og var því ekki með í dag.

Kolbeinn lék tvo leiki á dögunum í lokakeppni EM með U21 árs landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner