Everton 1 - 1 Crystal Palace
1-0 James Rodriguez ('56 )
1-1 Michy Batshuayi ('86)
1-0 James Rodriguez ('56 )
1-1 Michy Batshuayi ('86)
Everton og Crystal Palace skildu jöfn á Goodison Park í dag. James Rodriguez skoraði fyrir heimamenn á 56. mínútu en varamaðurinn Batshuayi jafnaði leikinn á 86. mínútu leiksins. Batshuayi kom inn á tveimur mínútum áður.
Everton fékk fleiri og betri færi í leiknum en tókst ekki að koma boltanum nema einu sinni framhjá Vicente Guaita í marki Crystal Palace. Guaita var frábær og varði frábærlega á 89. mínútu leiksins þegar Everton hefði getað skorað sigurmarkið.
Það var Seamus Coleman sem lagði upp mark James en Jeffrey Schlupp lagði upp mark Batshuayi.
Everton er í 8. sæti, fjórum stigum frá Meistaradeidlarsæti. Palace er níu stigum á eftir í 12. sætinu. Tólf stig eru þaðan niður í Fulham í fallsæti.
Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði á bekknum í dag en kom inn á eftir hálftíma þegar Andre Gomes gat ekki haldið leik áfram.
Richarlison with Digne, James and Sigurdsson over the free kick #EVECRY pic.twitter.com/yJsolzvgju
— Dan (@danoftheroyals) April 5, 2021
Athugasemdir