Arnór Snær skoraði tvö: Siggi Jóns farið fram á þetta
Auglýsing

Arnór Snær reif fram markaskóna í dag.

Mynd: Raggi Óla

Arnór Snær reif fram markaskóna í dag.

Mynd: Raggi Óla
„Það var gífurlega mikilvægt að spyrna strax frá bakkanum og fara strax aftur af stað,\" sagði Arnór Snær Guðmundsson, varnarmaður ÍA, eftir sigur á Selfossi.
Leikurinn fór 2-0 fyrir ÍA og skoraði Arnór bæði mörkin. ÍA er komið aftur á sigurbraut eftir tap gegn Víkingi Ólafsvík í síðustu umferð.
„Þeir gáfu okkur hörkuleik. Við vorum lengi í gang, svolítil deyfð yfir þessu en þegar við komumst í gang var þetta aldrei spurning. Selfoss setti svolítið á okkur og voru í raun og veru óheppnir að pota ekki inn einu í upphafi leiks.\"
„Þetta var ekki mikið fyrir augað. Bæði mörkin eftir föst leikatriði en þetta eru þrjú stig og það er það eina sem við erum að hugsa um. Það var gaman að sjá hvað það mættu margir á völlinn.\"
„Við vorum að gera grín að þessu. Ég var kominn með eitt mark fyrir ÍA á fjóru og hálfu ári fyrir þennan leik í kvöld. Tvö í kvöld þannig að ég er búinn að þrefalda markafjöldann á 90 mínútum.\"
„Það er óvanalegt en Siggi Jóns hefur fram á að hafsentarnir skili mörkum þegar við förum inn í teiginn. Það er ánægjulegt að hafa gert eitthvað í því.\"
Arnór er miðvörður en hann spilaði sem bakvörður í kvöld.
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.