Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 05. júlí 2021 10:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glódís tilnefnd sem leikmaður mánaðarins
Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir er ein af þremur leikmönnum sem koma til greina sem leikmaður mánaðarins í sænsku úrvalsdeildinni.

Glódís hefur verið hreint út sagt stórkostleg fyrir Rosengård á tímabilinu.

Rosengård er á toppnum í sænsku úrvalsdeildinni þegar mótið er hálfnað með sex stiga forystu á Häcken í öðru sæti. Rosengård hefur unnið níu leiki, gert tvö jafntefli en ekki enn tapað leik.

Rosengård hefur aðeins fengið á sig tvö mörk í fyrstu 11 leikjum sínum og spilar Glódís Perla stórt hlutverk í því. Hún hefur verið mögnuð í hjarta varnarinnar hjá liðinu og átt fast sæti í liði umferðarinnar.

Hún kemur til greina sem leikmaður mánaðarins í Svíþjóð fyrir júnímánuð ásamt liðsfélögum sínum, Olivia Schough og Jelena Cankovic.

Þjálfarar, fyrirliðar og sérfræðingar velja um hver verður leikmaður mánaðarins en valið verður tilkynnt á næstunni.

Nú þegar hefur einn Íslendingur fengið tilnefningu fyrir að vera leikmaður mánaðarins í Svíþjóð á þessu tímabili. Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Kristianstad, var valin í apríl.


Athugasemdir
banner
banner
banner