Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. október 2020 18:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ousmane Dembele ekki til Man Utd
Mynd: Getty Images
Franski kantmaðurinn Ousmane Dembele verður ekki leikmaður Manchester United í dag.

Man Utd hefur verið á eftir Jadon Sancho í allt sumar en það gekk ekki eftir og var Dembele þá næstur á lista.

Man Utd vildi fá hann á láni frá Barcelona en Börsungar voru ekki tilbúnir að lána hann. Barcelona skipti um skoðun í dag og opnaði dyrnar fyrir lánssamning en vildi þá að Dembele myndi framlengja samning sinn um eitt ár.

David Ornstein, fréttamaður The Athletic segir að það verði ekkert af því að Dembele fari til Manchester United.

Man Utd er búið að ganga frá kaupum á Alex Telles og Edinson Cavani verður staðfestur sem nýr leikmaður félagsins fljótlega. Núna er hins vegar útlit fyrir að enginn hægri kantmaður komi til félagsins í þessum glugga.


Athugasemdir
banner
banner
banner