Fotbolti.net
05.12.20 - 19:27
Victor Pálsson

Spánn: Atletico Madrid á toppinn

Spánn: Atletico Madrid á toppinn
Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid 2 - 0 Valladolid
1-0 Thomas Lemar('56)
2-0 Marcos Llorente('72)
Atletico Madrid vann góðan sigur í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið fékk Valladolid í heimsókn á Wanda Metropolitano.

Atletico gat komist í efsta sæti deildarinnar með sigri og tekið fram úr Real Sociedad sem sat þar fyrir viðureignina.

Mörk frá Thomas Lemar og Marcos Llorente sá um að tryggja Atletico sigurinn og um leið tveggja stiga forskot í toppsætinu.

Atletico er eina taplausa lið deildarinnar eins og er og hefur aðeins fengið á sig tvö mörk í fyrstu 10 umferðunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.