Arthur Masuaku, leikmaður West Ham, skoraði stórglæsilegt mark í 3-2 sigri liðsins á Evrópumeisturum Chelsea í ensku úrvalsdeldinni en í gær en ætlaði hann að skjóta?
Masuaku var með boltann á vinstri vængnum og Michail Antonio að hlaupa í kringum hann að draga menn að sér og reyna að opna svæði.
Vinstri bakvörðurinn fann loks smá svæði, færði boltann örlítið áður en hann lét vaða. Boltinn fór efst í nærhornið og var Edouard Mendy í miklu basli. Það endaði með því að hann kýldi boltann í eigið net og úr varð frábært mark.
Það leit allt út fyrir að Masuaku ætlaði sér að koma boltanum fyrir og staðfesti hann það í færslu sinni á Twitter.
„Var þetta fyrirgjöf eða skot? (Vísbending): Ég var jafn hissa og þið," sagði Masuaku.
Markið má sjá með því að smella á þennan tengil
So, was it a cross or was it shot ??!? 😂😂 (hint : I was as surprised as you 🤣) 👑⚒ #londonderby pic.twitter.com/qoBeNOy43Y
— Arthur Masuaku (@ArthurMasuaku) December 4, 2021
Athugasemdir