ÍA fékk Val í heimsókn í æfingaleik í gær. Heimamenn sigruðu leikinn með fjórum mörkum gegn tveimur.
Tímabilið hjá Valsmönnum var mikil vonbrigði en ÍA tryggði áframhaldandi veru í efstu deild með sigri í síðastu umferð.
Það var mikill hasar og mikið um að vera í leiknum í gær.
Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði Vals fékk að líta rauða spjaldið fyrir tæklingu eftir klukkutíma leik en leikurinn var sýndur á ÍA TV en lýsirinn þar sagði réttilega að svona ætti ekki að sjást í æfingaleik.
Einum manni færri tókst Val að jafna í 2-2 en slæm mistök hjá Arnóri Smárasyni urðu til þess að Skagamenn komust aftur yfir.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér að neðan.
Það helsta úr æfingaleik ÍA gegn Valsmönnum sem fram fór í gær #fotboltinet pic.twitter.com/42OTMuhktH
— ÍATV (@ia_sjonvarp) December 5, 2021
Athugasemdir