Santi Cazorla, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur farið á kostum með Al Sadd í Katar á þessu tímabili.
Hinn 36 ára gamli Cazorla var á skotskónum í 2-0 sigri á Al Gharafa um helgina.
Cazorla skoraði úr vítaspyrnu en hann tók Panenka víti með því að vippa á mitt markið.
Það sem gerði vítaspyrnuna ennþá áhugaverðari er að Cazorla tók hana með vinstri fæti.
Í gegnum tíðina hefur Cazorla notað hægri fótinn þegar hann hefur tekið vítapyrnur. Hér að neðan má sjá markið.

Meanwhile in Qatar … Santi Cazorla produces a deft panenka penalty for Al Sadd pic.twitter.com/HWob2RT9XS
— Guardian sport (@guardian_sport) April 6, 2021
Athugasemdir