Breki Þór Hermannsson leikmaður Vestra átti stórleik þegar Vestri lagði Völsung 5-1 á Ísafirði fyrr í dag.
Breki skoraði eitt mark og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum.
Fótbolti.net ræddi við Breka Þór eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Vestri 5 - 1 Völsungur
5-1 sigur í dag eitt mark og þrjár stoðsendingar frá þér, þú hlýtur að vera ánægður.
„Já að sjálfsögðu, þetta var flottur leikur hjá liðinu í dag. Það hefði verið fínt að halda hreinu en annars sáttur".
Fyrri hálfleikurinn var jafn, síðan komuð þið inn í seinni hálfleik og genguð frá þeim. Hvað var talað um í hálfleik sem breytti leiknum?
„Bara halda áfram að sækja og verjast vel, loka inn á miðsvæðið og hleypa þeim út á kantana og sækja hratt".
Breki er á láni hjá Vestra frá ÍA og kom til liðsins í vetur. Hvernig hafa fyrstu mánuðirnir á Ísafirði verið hjá þér?
„Þeir hafa verið mjög flottir, strákarnir hafa tekið vel á móti mér og ég er þakklátur fyrir það".
Myndir þú segja að það væri gott að koma til Ísafjarðar að spila?
„Já ég held að allir leikmenn hafi gott af því að koma í bæ utan höfuðborgarsvæðisins og búa einir".
Frábær frammistaða hjá þér í dag, hvað heldur þú að hún gefi þér fyrir komandi leiki og restina af tímabilinu?
„Hún eykur sjálfstraust og ég næ vonandi að halda áfram að skora og leggja upp. Gott í bankann".
Viðtalið í held sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.
























