Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 06. ágúst 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Werder Bremen vill fá Chong á láni
Mynd: Getty Images
Manchester United er tilbúið að lána Tahith Chong á komandi tímabili til að hann nái í meiri reynslu.

Þýska félagið Werder Bremen hefur sýnt Chong áhuga og möguleiki er á að hann fari þangað.

Hinn tvítugi Chong skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Manchester United í mars en umboðsmaður hans hefur staðfest að leikmaðurinn hafi áhuga á að fara til Þýskalands.

Chong kom inn á sem varamaður í 2-1 sigrinum á LASK í Evrópudeildinni í gær en það var fyrsti leikur hans síðan að fótboltinn byrjaði aftur eftir hlé.
Athugasemdir
banner
banner
banner