Fotbolti.net
06.09.20 - 17:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

England: Jafnt í stórleiknum - Arsenal burstaði Reading

Man Utd náði í stig í stórleiknum.

Man Utd náði í stig í stórleiknum.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Fyrstu umferðinni í úrvalsdeild kvenna í Englandi lauk í dag. Deildin hófst í gær þegar Manchester City vann 2-0 sigur á Aston Villa. Enska landsliðskonan Georgia Stanway skoraði þar bæði mörkin fyrir City.
Í dag voru fimm leikir. Dagurinn byrjaði á leik Arsenal og Reading þar sem Arsenal vann öruggan 6-1 sigur. Hollendingarnir Jill Jamie Roord og Vivianne Miedema voru drjúgar fyrir Arsenal. Roord skoraði þrennu og Miedema var með tvö, þar á meðal þetta glæsimark sem sjá má neðst í fréttinni.

Brighton lagði Birmingham, Everton burstaði Bristol City og Tottenham og West Ham skildu jöfn.

Í stórleik fyrstu umferðar mættust Manchester United og Chelsea. Þar var jafntefli niðurstaðan í hörkuleik. Sam Kerr kom Chelsea yfir á 25. mínútu en þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma skoraði Leah Galton jöfnunarmark Man Utd.

María Þórisdóttir var ekki í hóp hjá Chelsea en Pernille Harder, ein besta fótboltakona í heimi, spilaði síðustu tíu mínúturnar fyrir ríkjandi Englandsmeistara Chelsea. Hún gekk nýlega í raðir félagsins frá Wolfsburg.

Arsenal er á toppnum eftir fyrstu umferðina en gera má ráð fyrir því að baráttan um titilinn verði á milli Arsenal, Chelsea og Man City. Man Utd gæti líka blandað sér í þá baráttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.