Byrjunarliðin í leik Everton og Arsenal sem hefst kl 20 eru klár.
Rafael Benitez stjóri Everton er undir mikilli pressu en liðið hefur ekki unnið í síðustu 8 leikjum. Hann gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði 4-1 í grannaslagnum gegn Liverpool í vikunni.
Lucas Digne og Salomon Rondon eru ekki í hópnum. Ben Godfrey færir sig í vinstri bakvörðinn en Yerry Mina kemur inn í miðvörðinn og spilar sinn fyrsta leik í tæpa tvo mánuði. Anthony Gordon kemur inn i liðið í stað Rondon.
Kieran Tierney, Granit Xhaka, Bukayo Saka og Lacazette byrja allir hjá Arsenal en Aubameyang fer á bekkinn og Smith Rowe er ekki í hópnum.
Everton: Pickford, Coleman, Keane, Mina, Godfrey, Doucoure, Allan, Gray, Townsend, Gordon, Richarlison.
Arsenal: Ramsdale, Tomiyasu, White, Gabriel, Tierney, Partey, Xhaka, Saka, Odegaard, Martinelli, Lacazette.
Athugasemdir