Fotbolti.net
07.01.21 - 13:22
Elvar Geir Magnússon

Daniel James verðmætari en Lionel Messi

Daniel James.

Daniel James.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er ýmislegt áhugavert þegar listi CIES Football Observatory yfir verðmætustu leikmenn heims er skoðaður betur. Nýr listi kom út í gær.

Sjálfur Lionel Messi er í 97. sæti listans en þessi 33 ára Argentínumaður er metinn á 49 milljónir punda.

Ein stærsta ástæðan fyrir því að Messi er svona neðarlega er samningsstaða hans en samningur hans við Barcelona rennur út næsta sumar.

Það eru tíu leikmenn Manchester United sem eru ofar en Messi á listanum. Þar á meðal er hinn umdeildi Daniel James en eftir lofandi byrjun hjá United hefur velska vængmanninum gengið mjög brösuglega.

Marcus Rashford, Bruno Fernandes, Mason Greenwood, Anthony Martial, Aaron Wan-Bissaka, Donny van de Beek, Harry Maguire, Scott McTominay og Victor Lindelöf eru einnig ofar en Messi.

Cristiano Ronaldo er í 131. sæti listans en hann er 35 ára. Aldurinn og lágt endursöluverðmæti fyrir Juventus eru ástæðan fyrir því að hann er eins neðarlega og raun ber vitni.

Manchester United er það félag sem er með flesta leikmenn á topp 100 listanum.

Leikmenn á topp 100:
10 leikmenn - Manchester United
9 - Barcelona
8 - Liverpool, Manchester City
7 - Chelsea
6 - Bayern Munich
5 - Borussia Dortmund, Inter Milan, Juventus
4 - Atletico Madrid, Tottenham, Real Madrid
3 - Napoli
2 - Paris Saint-Germain, Arsenal, Leicester City, Sevilla, Wolves, Everton
1 - Bayer Leverkusen, Real Sociedad, AC Milan, West Ham, Rennes, RB Leipzig, Villarreal, Lazio
Bruno Fernandes og Marcus Rashford.

Bruno Fernandes og Marcus Rashford.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.