Fotbolti.net
07.01.21 - 19:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lokaákvörðun með leik A. Villa og L'pool tekin á morgun

Lokaákvörðun með leik A. Villa og L'pool tekin á morgun
Canon

Mynd: Getty Images

Hætta er á því að leikur Aston Villa og Liverpool í ensku bikarkeppni geti ekki farið fram á morgun. Það er vegna smita hjá Aston Villa en félagið lokaði æfingasvæði sínu í dag vegna fjölda smita.

Liðin eiga að mætast í 3. umferð bikarkeppninnar en leikmenn Aston Villa æfðu ekki í dag.
Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að lokaákvörðun með leikinn verði tekin á morgun.

Leikur Southamton og Shrewsbury fer ekki fram um helgina og knattspyrnusambandið mun funda í næstu viku hvernig það verður tæklað, hvort Southampton verði dæmdur sigur vegna smita hjá Shrewsbury eða hvort leikurinn fari fram síðar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.