Manchester United er sagt hafa mikinn áhuga á að fá miðjumanninn Jack Grealish í sínar raðir frá Aston Villa.
Grealish hefur verið langbesti leikmaður Aston Villa undanfarin ár og er skærasta stjarna liðsins. Einhver umræða hefur verið hvort að hann sé of mikill vandræðagemsi utan vallar til að stærri félögin sjái hann sem góðan kost fyrir sig.

The Athletic greinir frá því að United geti keypt Grealish í sumar en þá þurfi félagið að punga út 90 milljónum punda, hið minnsta.
Grealish er 25 ára gamall og hefur skorað fimm mörk í fimmtán deildarleikjum á leiktíðinni.
Athugasemdir