„Það er ekki auðvelt, en það er mögulegt. Sonur minn. Mitt helsta afrek. Mín stærsta blessun í lífinu," skrifaði landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir í Twitter-færslu í gærkvöldi.
Dagný var til viðtals á Sky Sports sem birt var í gær. Þar ræðir Dagný um meðgönguna og hvernig væri að verið að snúa aftur í fótboltann eftir fæðingu. Dagný eignaðist son árið 2018.
Dagný var til viðtals á Sky Sports sem birt var í gær. Þar ræðir Dagný um meðgönguna og hvernig væri að verið að snúa aftur í fótboltann eftir fæðingu. Dagný eignaðist son árið 2018.
„Ég held ég sé betri í leikjum og á æfingum því þá veit ég að ég er ekki hjá honum og vil ekki að sá tími fari til spillis og vil ekki vera í slæmu skapi þegar ég sé hann," sagði Dagný. Hún var ekki að búast við því að verða ólétt þegar hún komst að því.
„Þetta var áfall ef ég áð vera hreinskilin. Fyrstu 22 vikurnar grét ég á hverjum einasta degi af því að ég var ólétt. Á þessum tíma kannaðist ég ekki við sjálfa mig. Allir þekktu mig sem knattspyrnukonu, landsliðskonu og allt í einu var ég bara ólétt heima hjá mér. Ég áttaði mig síðan á því að þetta væri bara blessun, að þetta væri það besta sem gat komið fyrir mig. Ég held að hann hafi verið þriggja daga gamall þegar ég sagði við eiginmann minn að ég væri ekki viss hvort ég vildi spila fótbolta aftur - ég vildi bara eignast annað barn," sagði Dagný og brosti.
„Fyrstu tvö árin hans átti ég mjög erfitt með að fara á æfingar því það eina sem ég vildi gera var að vera með honum. Það sem hvatti mig hins vegar áfram í endurkomunni í knattspyrnunni var að sýna fólki að ég gæti enn spilað með landsliðinu, ég gæti enn verið atvinnumaður í knattspyrnu og gæti um leið orðið betri leikmaður heldur en ég var áður en ég átti son minn. Betri leikmaður, betri liðsfélagi og góð móðir."
Dagný segir að það sé alltaf hægt að ná fyrra standi og jafnvel orðið betri en maður var fyrir. Hún kemur þá inn á brjóstagjöfina því hún hafi tekið orku frá henni. Hún hafi fyrst náð fullum styrk eftir að brjóstagjöfinni var lokið. Viðtalið má sjá hér að neðan.
„Ég var með hann á brjósti í ellefu og hálfan mánuð og fannst ég alltaf vera 97%, og þurfa aðeins meira til að verða sá leikmaður sem ég var. Eftir að hann hætti á brjósti tók það mig bara 1-2 mánuði að verða 100%. Ég vildi að ég hefði vitað þetta en á sama tíma hefði ég aldrei hætt fyrr með hann á brjósti bara út af þessu," sagði Dagný.
Sjá einnig:
Sara Björk: Þú getur gert bæði
It ain’t easy, but it’s possible ❤️💯
— Dagný Brynjarsdóttir (@dagnybrynjars) January 6, 2022
My son. My greatest achievement. My biggest blessing in life. https://t.co/E9FkriyDht
Athugasemdir