Fotbolti.net
07.02.21 - 13:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liverpool mætir Leipzig í Ungverjalandi

Puskas Arena

Puskas Arena

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool og RB Leipzig munu mætast á Puskas Arena í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Þetta var ákveðið í dag en búið var að staðfesta að þau myndu ekki mætast í Leipzig vegna faraldursins.
Leikurinn fer fram 16. febrúar en ferðabann er frá Englandi til Þýskalands til 17. febrúar.

Seinni leikur liðanna fer fram á Anfield þann 10. mars.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.