Það er bull að vængmaðurinn Gareth Bale tali ekki spænsku eins og var talað um í fjölmiðlum fyrir nokkrum mánuðum.
Bale hefur verið ásakaður um leti síðan hann samdi við Real og vildu margir meina að hann hafi ekki nennt að læra spænska tungumálið.
Luka Modric hefur spilað með Bale í mörg ár og segir þessar fréttir ekki réttar. Þeir voru saman í Tottenham og Real en Bale er búinn að semja við það fyrrnefnda á ný á lánssamningi.
„Ég hef spilað með Gareth mest allan atvinnumannaferilinn og hann er frábær náungi. Hann er feiminn líkt og ég," sagði Modric.
„Það sem þeir segja um hann er ekki rétt. Það er mikið sagt um hann en hann hefur gert mjög góða hluti í Madríd og verður minnst fyrir það sem hann afrekaði fyrir félagið."
„Hann hefur aldrei lent í vandræðum í búningsklefanum, hann er frábær náungi. Hann talaði spænsku við okkur og grínaðist."
Athugasemdir