Fotbolti.net
08.01.20 - 10:04
Magnús Már Einarsson

Darko Kovacevic lenti í skotárás

Darko Kovacevic í leik með Real Sociedad á sínum tíma.

Darko Kovacevic í leik með Real Sociedad á sínum tíma.

Canon

Mynd: Getty Images

Darko Kovacevic, fyrrum framherji Juventus og Real Sociedad, varð í gær fyrir skotárás í Grikklandi.

Kovacevic slapp lítið meiddur úr skotárásinni en hann þurfti þó að leita á sjúkrahús til að skoða sár á hnénu.

Kovacevic á heimili í Aþenu og hann var á leið út þegar tveir menn biðu hans og annar þeirra skaut hann í hnéð.
Lögreglan leitar nú árásarmannana en bifreið þeirra fannst nálægt golfvelli nokkrum kílómetrum frá heimili Kovacevic.

Hinn 46 ára gamli Kovacevic lauk ferli sínum hjá Olympiakos en hann varð síðar yfirmaður íþróttamála hjá félaginu. Í dag starfar hann fyrir knattspyrnusamband Serbíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.