mán 08. febrúar 2021 22:03
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Suarez skoraði tvö í svekkjandi jafntefli
Luis Suarez skoraði bæði mörk Atlético
Luis Suarez skoraði bæði mörk Atlético
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 2 - 2 Celta
0-1 Santi Mina ('13 )
1-1 Luis Suarez ('45 )
2-1 Luis Suarez ('50 )
2-2 Facundo Ferreyra ('89 )

Atlético Madríd tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni á Spáni er liðið gerði 2-2 jafntefli við Celta Vigo í kvöld. Luis Suarez skoraði bæði mörk Atlético.

Santi Mina kom Celta yfir á 13. mínútu. Hugo Mallo átti góða fyrirgjöf meðfram jörðinni inn í teiginn og var Mina mættur til að afgreiða boltann í netið.

Luis Suarez jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Marcos Llorente. Suarez var aftur á ferðinni í byrjun síðari hálfleiks eftir fyrirgjöf frá brasilíska bakverðinum Renan Lodi.

Facundo Ferreyra náði í stig fyrir Celta undir lok leiksins. Augusto Solari átti sendingu inn í teiginn á Ferreyra sem var með Llorente í sér en tókst að klára færið.

Lokatölur 2-2. Svekkjandi úrslit fyrir Atlético sem er þó enn í toppsætinu með 50 stig, átta stigum meira en Barcelona sem er í öðru sæti. Celta Vigo er í tíunda sæti með 26 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner