Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 08. mars 2023 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Bellingham brjálaðist eftir tapið
Mynd: Getty Images

Chelsea sló Borussia Dortmund úr Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi og var hinn ungi Jude Bellingham pirraður að leikslokum.


Þegar leikmenn voru að ganga af velli átti Bellingham eitthvað ósagt við Cucurella, elti hann uppi og ýtti í hann. Bellingham missti algjörlega stjórn á skapinu og ráfaði reiður um völlinn eftir að Cucurella gekk í burtu.

Bellingham hafði sýnt pirring á lokakafla leiksins þegar leikmenn Chelsea voru að tefja hvað mest og átti einnig harkalega tæklingu á Reece James sem hinn meiddi Thiago Silva mótmælti að heiman.

Bellingham ýtti ekki aðeins í Cucurella heldur einnig í myndavél hjá myndatökumanni sem myndaði reiðan og svekktan Bellingham ganga af velli, eins og sést í enda myndbandsins hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner