Gruna að Vinicius sé að leka upplýsingum til fjölmiðla

Kylian Mbappe og Vinicius Junior.

Mynd: EPA

Kylian Mbappe og Vinicius Junior.

Mynd: EPA
Mundo Deportivo segir að innan Real Madrid sé verið að leita að því hver sé að leka upplýsingum um þau innanbúðarátök sem hafa átt sér stað hjá félaginu.
Staðan innan klefans og á æfingasvæðinu er eldfim en fjallað hefur verið um rifrildi og slagsmál sem hafa átt sér stað þar.
Staðan innan klefans og á æfingasvæðinu er eldfim en fjallað hefur verið um rifrildi og slagsmál sem hafa átt sér stað þar.

TENGT EFNI
Logar allt stafnanna á milli hjá Real Madrid - Handalögmál og leikmenn tala ekki við Arbeloa
Spænskir fjölmiðlar hafa til dæmis fjallað í smáatriðum um slagsmál milli Aurelien Tchouameni og Fede Valverde sem áttu sér stað í klefanum.
Eftir slagsmálin var haldinn krísufundur þar sem reynt var að róa andrúmsloftið og spennuna innan leikmannahópsins.
Sagt er að sumir leikmenn Real Madrid gruni að það sé Vinicius Junior sem beri ábyrgð á því að leka upplýsingum til fjölmiðla.