Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 08. júlí 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Patric rekinn útaf fyrir að bíta Donati
Toppbaráttulið Lazio tapaði óvænt gegn fallbaráttuliði Lecce er liðin mættust í ítalska boltanum í gærkvöldi.

Lecce var 2-1 yfir í uppbótartíma þegar spænski bakvörðurinn Patric Gabarron fékk þá flugu í hausinn að bíta Giulio Donati, leikmann Lecce, í handlegginn að hætti Luis Suarez.

Atvikið var skoðað í VAR herberginu og barst dómara leiksins tilkynning um að reka yrði Patric af velli hið snarasta eftir þessa fáránlegu hegðun hans.

Patric er 27 ára gamall og hefur leikið 87 leiki á fimm árum hjá Lazio. Þar áður var hann partur af B-liði Barcelona og fékk aðeins að spila einn leik með stóru strákunum í aðalliðinu.


Slapp
banner