Fotbolti.net
08.07.21 - 17:55
Ívan Guðjón Baldursson

Simeone búinn að framlengja við Atletico

Simeone búinn að framlengja við Atletico
Canon

Mynd: EPA

Diego Simeone er búinn að framlengja samning sinn við Spánarmeistara Atletico Madrid til 2024.
Simeone er ein af helstu ástæðunum fyrir stöðugri velgengni Atletico undanfarinn áratug og er afar eftirsóttur þjálfari.

Simeone vann einn Spánarmeistaratitil með Atletico sem leikmaður og hefur unnið tvo sem þjálfari. Undir hans stjórn vann smærra félagið í Madríd Evrópudeildina í tvígang og tapaði tvisvar sinnum úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Þetta miklar gleðifréttir fyrirstuðningsmenn Atletico Madrid sem hafa gífurlega trú á sínum 51 árs gamla þjálfara.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.