Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. október 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland mætir Rúmeníu á Laugardalsvelli í kvöld
Icelandair
Það er allt undir á Laugardalsvelli í kvöld
Það er allt undir á Laugardalsvelli í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska karlalandsliðið mætir Rúmeníu í undanúrslitum í umspili Evrópumótsinsí kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:45 og fer fram á Laugardalsvelli.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram í mars en var frestað vegna áhrifa kórónaveirunnar.

Tólfan, stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins, verður á Laugardalsvelli í kvöld en ekki fékkst leyfi fyrir fleiri áhorfendum vegna stöðunnar í þjóðfélaginu.

Sigurvegarinn úr leik kvöldsins mætir Búlgaríu eða Ungverjalandi í úrslitaleik um sæti á EM.

Leikir dagsins:
18:45 Búlgaría-Ungverjaland (Vasil Levski National Stadium)
18:45 Ísland-Rúmenía (Laugardalsvöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner