Fotbolti.net
09.01.21 - 05:55
Aksentije Milisic

Þýskaland í dag - Leipzig getur komist á toppinn

Þýskaland í dag - Leipzig getur komist á toppinn
Canon

Mynd: Getty Images

Fimmtánda umferðin í Bundesliga heldur áfram í dag en einn leikur var í gær þar sem Bayern Munchen tapaði gegn Mönchengladbach.
Það þýðir að RB Leipzig getur komist á toppinn í dag en liðið á hins vegar erfiðan leik fyrir höndum. Dortmund kemur þá í heimsókn en liðið er í fjórða sæti deildarinnar.

Schalke 04 mætir Hoffenheim en Schalke hefur enn ekki unnið leik í vetur. Spurning hvort sá fyrsti komi í dag.

Leverkusen, sem er í toppbaráttunni, fær Werder Bremen í heimsókn og svo mætast Freiburg og Köln svo eitthvað sé nefnt.

Þýskaland: Bundesliga
14:30 Schalke 04 - Hoffenheim
14:30 Freiburg - Köln
14:30 Union Berlin - Wolfsburg
14:30 Mainz - Eintracht Frankfurt
14:30 Leverkusen - Werder
17:30 RB Leipzig - Dortmund
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.