Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. mars 2023 23:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: KFK áfram með fullt hús stiga - Jafnt hjá ÍH og KV
KV komið á blað
KV komið á blað
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

ÍH og KV mættust í riðli 1 í B deild Lengjubikarsins í kvöld en fyrir leikinn höfðu KV tapað fyrstu tveimur leikjunum og enn ekki skorað mark. ÍH var með þrjú stig eftir tvo leiki.


ÍH var með forystuna í hálfleik en þá var staðan 2-1. Patrik Thor Pétursson tryggði svo KV sitt fyrsta stig með marki snemma í síðari hálfleik.

Bjarki Þór Þorsteinson kom inn á sem varamaður í liði ÍH á 77. mínútu, hann nældi sér í gult spjald þremur mínútum síðar og fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótartíma.

KFK er með fullt hús stiga í C deild eftir 3-0 sigur í Fagralundi gegn liði Hamars í kvöld.

ÍH 2-2 KV
1-0 Ásgrímur Daníel Víðisson ('19 , Sjálfsmark)
1-1 Aron Skúli Brynjarsson ('40 )
2-1 Arnar Sigþórsson ('41 )
2-2 Patrik Thor Pétursson ('52 )
Rautt spjald: Bjarki Þór Þorsteinsson , ÍH ('90)

KFK 3 - 0 Hamar
1-0 Stefán Ómar Magnússon ('50 )
2-0 Hilmar Rafn Emilsson ('80 )
3-0 Jamal Michael Jack ('83 )


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner