Virgil van Dijk og Joe Gomez eru báðir í æfingahópi Liverpool sem er að fara til Austurríkis. Varnarmennirnir tveir hafa báðir verið lengi frá vegna hnémeiðsla.
Van Dijk meiddist gegn Everton þann 17. október en Gomez meiddist í landsliðsverkefni með Englandi í nóvember.
Gert er ráð fyrir því að leikmennirnir muni taka þátt í hópæfingum í æfingaferðinni.
Van Dijk meiddist gegn Everton þann 17. október en Gomez meiddist í landsliðsverkefni með Englandi í nóvember.
Gert er ráð fyrir því að leikmennirnir muni taka þátt í hópæfingum í æfingaferðinni.
Jurgen Klopp tekur 34 leikmenn með sér til Austurríkis, þar á meðal er Ibrahima Konate sem var keyptur frá RB Leipzig á 36 milljónir punda.
Liverpool hefur enn ekki staðfest æfingaleiki fyrir mót en talið er að liðið muni spila að minnsta kosti einn leik á Anfield og svo annan leik á útivelli.
Athugasemdir