Barcelona í baráttuna um Guehi - Man Utd reynir aftur við Baleba á næsta ári - Muniz fær nýjan samning
Útvarpsþátturinn - Skemmdarverk á íþrótt
Uppgjör og lið ársins í 4&5. deild
Leiðin úr Lengjunni: Þróttarar að toppa á réttum tíma og glórulaus ákvörðun hjá Grindavík
Hugarburðarbolti GW 3 Sturlaður loka gluggi í enska !
Enski boltinn - Öflugir Ungverjar, taugahrúgan Amorim og gluggadagur
Innkastið - Besti leikur tímabilsins og allt í járnum á toppnum
Uppbótartíminn - Ræðst allt saman á fimmtudaginn
Útvarpsþátturinn - Lag fyrir Blika og landsliðið strax í úrslitaleik
Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992
Innkastið - Stundum hata ég fótbolta
Leiðin úr Lengjunni: Þórsarar stigu stórt skref og barátta um öll sæti
Hugarburðarbolti - Man Utd er í veseni
Enski boltinn - Bíómyndahandrit
Spenna í 2. deild, línur nokkuð skýrar í 4. deild og playoffs klár í 5. deild
Útvarpsþátturinn - Himnaríki Vestra og helvíti Vals
Ítalski boltinn - Upphitun fyrir tímabilið
Turnar Segja Sögur: Fc Risar vs Fc Dvergar
Hugarburðarbolti GW 1 Ballið er byrjað!
Innkastið - Gamlir draugar hjá Val, ÍA fallið og deilt um dóm
Enski boltinn - Arsenal með mark úr horni
   sun 09. ágúst 2015 13:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Upptaka - Höskuldur: Á Gumma Ben margt að þakka
Höskuldur á fleygiferð á KR-vellinum.
Höskuldur á fleygiferð á KR-vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Gunnlaugsson hefur heldur betur slegið í gegn með Breiðabliki í Pepsi-deildinni í sumar. Þessi tvítugi leikmaður hefur blómstrað en hann kíkti í skemmtilegt spjall í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær.

Guðmundur Benediktsson, núverandi aðstoðarþjálfari KR, þjálfaði Höskuld hjá Blikum í fyrra og gaf honum tækifærið.

„Ég spilaði slatta af leikjum sem sóknarbakvörður í fyrra. Gummi Ben og Willum sáu aðeins meiri sóknarhæfileika í mér og hentu mér á kantinn. Gummi hafði mikla trú á mér og gaf mér alvöru séns, ég á honum margt að þakka. Ég byrjaði alla seinni umferðina undir hans stjórn. Nú er ég árinu reyndari og þroskaðri, líkamlega og andlega. Ég var ákveðinn í að skora meira og leggja upp," segir Höskuldur.

Höskuldi hefur verið líkt við leikmanninn Gumma Ben af fótboltaáhugafólki.

„Hann var frábær leikmaður og svo þegar hann var að þjálfa okkur var hann oft á strigaskónum að gera lítið úr okkur á slútt-æfingum. Það er heiður ef það er verið að líkja mér við hann."

Eins og flestir hæfileikaríkir ungir leikmenn er Höskuldur með stefnuna á að reyna sig í atvinnumennsku erlendis.

„Ég er að fókusa á núið. Það er ógeðslega gaman í Blikum og er einstök stemning sem maður hefur ekki upplifað áður. Það sýnir sig á vellinum. Það er samt klárlega markmið mitt að taka næsta skref og sjá hversu langt maður nær," segir Höskuldur.

Þrátt fyrir að vera ekki hár í loftinu skorar Höskuldur reglulega skallamörk.

„Félagi minn sem spilar núna með Hamri, Hafþór Haukur Steinþórsson, var alltaf að skjóta á mig í yngri flokkunum. Hann var rosa góður skallamaður sjálfur en sagði mig alltaf lélegan skallamann þegar við vorum að leika okkur. Það peppaði mig í að æfa mig í þessu. Ég hef ekki verið frábær skallamaður en fór aðallega að pæla í staðsetningum."

Höskuldur er aðdáandi Manchester United og Perl Jam eins og fram kemur í viðtalinu sem má heyra í spilaranum hér að ofan.

Sjá einnig:
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni
Athugasemdir
banner