Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 09. ágúst 2020 14:45
Aksentije Milisic
Man Utd ætlar að bjóða Henderson nýjan samning
Mynd: Getty Images
Manchester United ætlar að bjóða markmanninum Dean Henderson nýjan og betri samning í annað skiptið á rúmu ári.

Henderson hefur staðið sig vel á síðustu tveimur leiktíðum hjá Sheffield United en hann er sagður vera óþolinmóður og vill fá tækifæri hjá Manchester United.

United lítur á Henderson sem framtíðarmarkvörð og vonast klúbburinn eftir því að hann skrifi undir nýjan samning við liðið og samþykki að fara á lán til Sheffield á næstu leiktíð, áður en hann tekur svo við markmannsstöðunni hjá United.

David De Gea, markvörður United, hefur verið í vandræðum og gert fullt af mistökum sem hafa kostað mörk á síðustu tveimur tímabilum og eru margir stuðningsmenn United komnir með nóg.




Athugasemdir
banner