Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. janúar 2021 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dembele á leið til Atletico
Moussa Dembele.
Moussa Dembele.
Mynd: Getty Images
Moussa Dembele, sóknarmaður Lyon, toppliðs frönsku úrvalsdeildarinnar, er á leið til toppliðs spænsku úrvalsdeildarinnar, Atletico Madrid.

Dembele mun koma á láni til Atletico sem mun svo eiga möguleika á að kaupa hann fyrir 33 milljónir evra að því er kemur fram á vefmiðlinum Goal.

Dembele kom til Lyon frá Celtic árið 2018 og hefur hann skorað 45 mörk í 108 leikjum fyrir Lyon.

Hann er aðeins búinn að skora eitt mörk á þessu tímabili og ætlar hann að prófa eitthvað nýtt núna. Næsti áfangastaður hans verður Madríd á Spáni.

Samkvæmt Goal þá fer hann í læknisskoðun hjá Atletico á morgun. Hann mun fylla skarð Diego Costa sem yfirgaf félagið í síðasta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner