Sepp Blatter hrökklaðist úr starfi sem forseti FIFA árið 2015, eftir næstum tvo áratugi í starfinu.
Hann var sakaður um stórfellda spillingu og mútuþægni en hefur alltaf haldið sakleysi sínu fram. Hann gaf út bók í fyrra þar sem hann lýsir því að valdamiklir menn hafi viljað steypa honum úr forsetastól FIFA.
Nú, fjórum árum eftir brottrekstur úr starfi, hefur bandaríska dómsmálaráðuneytið birt skýrslu sem gefur ásökunum á hendur Blatter byr undir báða vængi.
Í skýrslunni kemur fram að breskur njósnari heyrði samtal milli Vladimir Putin og Dmitry Medvedev, sem hafa skipt störfum forseta og forsætisráðherra Rússlands bróðurlega á milli sín undanfarinn áratug, þar sem kom fram að Blatter hafði verið mútað til að tryggja að HM færi fram í Rússlandi. Samtalið átti sér stað árið 2011.
A report has been published which claims that a former FIFA president was bribed by a 'Russian oligarch' to award hosting rights to Russia for the 2018 World Cup. pic.twitter.com/21I5kyCB9n
— Sky Sports News (@SkySportsNews) December 10, 2019
Athugasemdir