Fotbolti.net
11.04.21 - 14:10
Ívan Guðjón Baldursson

Lucas Vazquez skaddaði liðband

Lucas Vazquez skaddaði liðband
Canon

Mynd: Getty Images

Lucas Vazquez, kantmaður Real Madrid sem getur einnig leikið í bakverði, verður frá næstu mánuði eftir að hafa skaddað liðband.
Vazquez hefur verið umtalaður undanfarna mánuði þar sem hann verður samningslaus í sumar og getur skipt um félag á frjálsri sölu.

Það eru mörg stórlið sem hafa áhuga á hinum 29 ára gamla Vazquez, sem hefur leikið fyrir Real Madrid allan ferilinn að undanskildu einu lánstímabili hjá Espanyol.

Vazquez hefur spilað 240 leiki fyrir aðallið Real Madrid og skorað 26 mörk. Hann er búinn að koma við sögu í 34 leikjum á tímabilinu og skora tvisvar.

Vazquez verður frá í 4-12 mánuði og á ekki möguleika á að fara á EM með Spánverjum. Hann hefði líklegast ekki verið í hóp þar sem hann hefur ekki spilað landsleik síðan 2018.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.